Jæja skinkur hvað segiði þá? 
Það ætlar engin að ríða á vaðið hér á bæ, svo ég hendi nú inn
nokkrum línum hér.
Af mér er að frétta það að ég kláraði 1 ár í félagsráðgjöf núna
seinast, en ákvað nú að breyta til og skella mér í geislafræði..
hemmm. Ég ætla spreyta mig á líffræðinni og sjáum hvað ég get í
því. Muhhah..
Annars er ég að vinna á flugvellinum í sumar og það er eintóm
gleði.
En nóg um það, segið mér, hverjar verða hér í sumar og hverjar
ekki? Það er nú spörning um að fara þá að skipuleggja SKRALL með
heitustu lummum bæjarins
Skella sér á veitingarhús og
drekka öl (nú eða kók) ? Hvað segiði um það geiturnar mínar?
Ég hef nú ekki frá miklu að segja.. en ég luma þó á einum brandara
í lokin:
Kona nokkur og karl voru út á landi að keyra. Skyndilega keyrir
karlinn á skunk sem skýst í veg fyrir bílinn. Þau vorkenndu honum
svo mikið að þau ákváðu að taka hann með í bílinn. Eftir dágóða
stund sér konan að skunkurinn er farinn að skjálfa,
Hún segir við karl sinn: ,,greyið litla, honum er svo kalt að hann
skelfur".
Þá segir karl: ,,settu hann þá milli lappanna á þér góða til að
hlýja honum"
Konan: ,,En hvað með lyktina"
Karl: ,,haltu bara fyrir nefið á honum".
KVEÐJA
Steinunn